top of page

Vortónleikar Karlakórs Selfoss laugardag 29. apríl kl 17:00

  • Apr 26, 2023
  • 1 min read

Updated: Apr 28, 2023

Karlakór Selfoss heldur vortónleika sína í Skálholtsdómkirkju sem hefur hlotið gagngera yfirhalningu laugardaginn 29. apríl kl 17:00. Miðaverð er 4000 og fást miðar við innganginn.


Kórfélagar hafa samviskusamlega æft í vetur vandaða söngdagskrá sem inniheldur fjölmörg ný verk, sem ekki hafa verið flutt af karlakórum fyrr, og efnisskráin er hæfilega blönduð af hefðbundnum karlakórslögum.


Við nýju verkin njótum við þess að stjórnandi kórsins, Skarphéðinn Þór Hjartarson, er flínkur útsetjari og er um helmingur laganna útsettur fyrir kórinn af honum. Skarphéðinn hefur starfað með Karlakór Selfoss í 8 ár. Píanóleikari kórsins, Jón Bjarnason, hefur starfað með Karlakór Selfoss í 12 ár.


Í upphafi starfsárs bættist karlakórnum góður liðsauki, því fjölmargir söngglaðir menn gengu í kórinn og hafa staðið sig vel á æfingum í vetur.


Trúlega hefur Karlakór Selfoss ekki verið fjölmennari en nú. Má nefna að við myndatöku í vor mættu 52 félagar en 20 piltar voru fjarverandi. Ef gluggað er í söngskrá tónleikanna er þar t.d. að finna nokkur lög (5) þeirra bræðra Jónasar og Jóns Múla Árnasona og nefna má lagið Biskupstungur eftir Bjarna Sigurðsson frá Geysi við texta Helga Seljan. Einnig má nefna lagið Hvert örstutt spor við texta Halldórs Laxness og Afmælisdiktur Þórbergs Þórðarsonar, en of langt mál yrði að gera söngskránni allri skil (22) í þessari stuttu grein.


Lokatónleikar starfsársins verða laugardaginn 29. apríl í Skálholtsdómkirkju kl. 17:00. - Aðgöngumiðaverð er kr. 4000.


Frekari upplýsingar á FB síðu Karlakórs Selfoss: https://www.facebook.com/karlakorSelfoss


Comments


Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

SKÁLHOLT - SAGA OG MENNING Í 1100 ÁR

Sími: +354 486-8801

Skálholtsskóli

Skálholti, 801Selfoss

skalholt@skalholt.is

© 2023 Skálholtskirkjustaður

bottom of page