Leiðsögn hópa í Skálholti
Skálholtsstaður var höfuðstaður landsins í um 750 ár og er einn merkasti sögustaður Íslands. Margir af helstu viðburðum Íslandssögunnar tengdust Skálholti og margir áhugaverðar sögupersónur lifðu þar og dóu. Starfsfólk Skálholts býður uppá að leiða gesti um Skálholtsstað og fara yfir söguna í stórum dráttum.
Hægt er að panta staðarleiðsögn um Skálholtsdómkirkju, minjasafnið, göngin, fornleifasvæði og sögustaði.
Gangan hefst í Skálholtskirkju þar sem kirkjulistaverk og munir eru skoðaðir. Sérstök áhersla er lögð á steinda glugga Gerðar Helgadóttur, altaristöflu Nínu Tryggvadóttur og ýmsa kirkjumuni frá 15. og 16. öld. Farið er á safnið í kjallara kirkjunnar þar sem steinkista Páls Jónssonar biskups er en hún er frá árinu 1211. Farið er út undirgöngin og út á minjasvæðið, inn í Þorláksbúð en gangan endar við Jurtagarðinn upp við hótelvegg. Gangan ætti að henta öllum, hún er á flatlendi og tekur um 30 - 50 mín eftir samkomulagi.
Gjaldið er hóflegt eða 1000 kr á mann, ókeypis er fyrir yngri en 12 ára. Gjaldið rennur óskipt til staðarins.
Hægt er að panta leiðsögn með því að senda tölvupóst á skalholt@skalholt.is
