Söguganga, kvöldverður og menningardagskrá 7. nóvember
- Sep 28, 2022
- 2 min read

Sjöundi nóvember er einn af merkari minnisdögum í Skálholti og sögu Íslands. Þann dag árið 1550 var herra Jón Arason, biskup á Hólum, tekinn af lífi ásamt tveimur sonum sínum, Ara lögmanni og sr. Birni. Markaði það upphaf siðaskipta í Hólastifti en siðbótin varð árið 1540 í Skálholtsstifti við andlát herra Ögmundar Pálssonar, biskups.
Dagskráin helgast af sögugöngu síðdegis um Þorláksleiðina nýju, kvöldverður er á veitingastaðnum Hvönn, menningardagskrá verður með Skálholtskórnum í kirkjunni um kvöldið og blysför að minnisvarðanum um herra Jón Arason. Að sjáfsögðu er svo endað á heitu súkkulaði í Skálholtsskóla/Hvönn. Hægt er að taka þátt í hverjum dagskrálið fyrir sig og er engin skráning á menningardagskrá kvöldsins. Skráning er á viðburðsíðunni á heimasíðu Skálholts vegna sögugöngu og kvöldverðar.
Það telst til nýbreytni að núna er söguganga um Þorláksleið síðdegis undir leiðsögn sr. Kristjáns Björnssonar, vígslubiskups. Eftir gönguna er boðið uppá tveggja rétta kvöldverð áður en farið verður út í kirkju á menningardagskrá um herra Jón. Gangan hefst kl. 17.00. Farin er hin nýja Þorláksleið frá Veitingastaðnum Hvönn (Skálholtsskóla) og niður að Stekkatúni við Hvítá og yfir að Þorlákshver við Brúará. Gengið er um Skálholtsbúðir á leiðinni ofaneftir og eftir Skólavegi heim aftur. Gangan tekur rúmlega hálfa aðra klukkkustund og er í heild um 6-7 km. Eftir hana verður tveggja rétta kvöldverður á veitingarstaðnum Hvönn. Gott er að skrá sig á viðburðasíðunni hér á þessari heimasíðu og panta einnig máltíðina. Einnig er hægt að hringja beint í síma 486 8870.
Ár hvert hefur verið minningarstund og menningardagskrá í Skálholti sjöunda nóvember. Í menningardagskránni núna syngur Skálholtskórinn undir stjórn Jóns Bjarnasonar, organista og lesið er úr ljóðum herra Jóns Arasonar, þessa merka Eyfirðings. Dagskráin í kirkjunni hefst kl. 20 og í lok hennar verður gengið með blys að minnisvarðanum um herra Jón Arason. Eftir dagskrá verður farið í heitt súkkulaði á veitingastaðnum Hvönn í boði Skálholtsstaðar.








































Comments