top of page

Sumartónleikar í Skálholti 28. júní - 9. júlí 2023

  • May 22, 2023
  • 1 min read

Sumartónleikar í Skálholti hafa verið starfandi frá árinu 1975 og staðið fyrir tónleikahaldi í Skálholtskirkju í 5 – 6 vikur á hverju sumri. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu og einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi yfir sumartímann. Á hverju sumri sækja á þriðja þúsund manns Sumartónleikana.


Eitt helsta markmið Sumartónleika í Skálholti er að stuðla að nýsköpun íslenskrar tónlistar. Tónverkin sem frumflutt hafa verið á hátíðinni nálgast 200, og hafa flest helstu tónskáld Íslands komið þar við sögu. Margir af þekktustu tónlistarflytjendum þjóðarinnar hafa einnig komið að starfi Sumartónleikanna á starfsferli sínum, og fjölmargir virtir erlendir flytjendur hafa sótt Sumartónleika heim. Hátíðin hefur skapað sér sess sem mikilvæg tónlistarhátíð langt út fyrir landsteinana, sérstaklega hvað varðar flutning á tónlist 17. og 18. aldar.


Eitt af markmiðum Sumartónleikanna er að vera vettvangur fyrir hljóðfæraleik á upprunaleg hljóðfæri og er Bachsveitin í Skálholti meðal hópa sem hafa skipað fastan sess í tónleikahaldi Sumartónleikanna.


Staðartónskáld Sumartónleikanna 2023 er Hjalti Nordal tónskáld og fiðluleikari.



Nánari upplýsingar um Sumartónleikana og dagskrá má sjá hér:


Facebook síða Sumartónleikanna:


Instagram síða Sumartónleikanna:




Comments


Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

SKÁLHOLT - SAGA OG MENNING Í 1100 ÁR

Sími: +354 486-8801

Skálholtsskóli

Skálholti, 801Selfoss

skalholt@skalholt.is

© 2023 Skálholtskirkjustaður

bottom of page