Skálholtshátíðin verður 16. og 17. júlí og Sumartónleikarnir fyrstu helgarnar júlí
- Jun 2, 2022
- 1 min read

Skálholtshátíð er haldin ár hvert sem næst Þorláksmessu á sumri. Núna verður hámessan sunnudaginn 17. júlí kl. 14 og hátíðardagskrá kl. 16 eftir kirkjukaffi en einnig orgeltónleikar um morguninn. Laugardaginn 16. júlí er útimessa við Þorlákssæti fyrir hádegi og tónleikar kl. 16. Alla morgna verður tíðarsöngur á vegum Ísleifsreglunnar sem endurvakin var í fyrra í Þorláksbúð. Boðið verður uppá veglegt kaffihlaðborð á laugardeginum.
Frekari dagskrá verður sett inn á síðuna eftir hvítasunnu.
Verður þá einnig auglýst dagskrá Sumartónleika í Skálholti sem verða fyrstu helgarnar í júlí.
Svo merkilega vill til að hægt var að halda bæði Sumartónleikana og Skálholtshátíð bæði árin sem heimsfaraldurinn geysaði og féll hvorgt niður þrátt fyrir þrengingar fyrir og eftir. Í ljósi þess er vonast eftir góðri þátttöku í öllum þáttum og messum í sumar svo fólk geti þakkað Guði fyrir afléttingar og betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga.








































Comments