top of page

Málþing um loftslagskreppuna og aðgerðir í þágu framtíðarinnar

  • Oct 26, 2021
  • 1 min read

Málþing um loftslagskreppuna og framtíðina verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands föstudaginn 29. október kl. 13.30–15.30 undir yfirskriftinni: Öll á sama báti - Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar.

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er heiðursgestur málþingsins sem haldið er á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands, í samvinnu við samráðsvettvanginn Faith for Nature (https://faithfornature.org/)


Dagskrá: Halldór Reynisson, verkefnisstjóri umhverfismála hjá Þjóðkirkjunni, setur ráðstefnuna og ræðir um Loftlagsmál, börnin og framtíðina


Erindi:

• Halldór Þorgeirsson, fulltrúi Andlegs þjóðarráðs bahá‘ía á Íslandi: Trú á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. • Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofunni: Kynning á nýjustu skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar. • Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild H.Í: Nánar um IPCC skýrsluna: Hörfun jökla og hækkun sjávarstöðu eru afleiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum. Örinnlegg: • Tryggvi Felixson, formaður Landverndar. • Hjördís Jónsdóttir, stofnandi Skógræktarfélagsins Ungviður. • Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði. • Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir, fulltrúi frá Ungum umhverfissinnum. • Axel Árnason Njarðvík í umhverfishópi þjóðkirkjunnar. • Áróra Árnadóttir, nýdoktor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. • Gunnar Hersveinn, athafnastjóri hjá Siðmennt. Málþingsstjóri: Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðadeild við Háskóla Íslands.


Málþinginu verður streymt og má finna það á slóðinni:

 
 
 

Comments


Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

SKÁLHOLT - SAGA OG MENNING Í 1100 ÁR

Sími: +354 486-8801

Skálholtsskóli

Skálholti, 801Selfoss

skalholt@skalholt.is

© 2023 Skálholtskirkjustaður

bottom of page