Miklar framkvæmdir í Skálholti og nýja danska klukkan hýfð í turninn
- Jun 2, 2022
- 2 min read

Nokkrir verktakar og dugandi menn hafa unnið hörðum höndum að endurnýjun í kirkjunni, gestastofunni, prestsetrinu og víðar á staðnum. Þriðjudaginn 7. júní verður nýja danska klukkan hífð neðan af bílastæði og yfir turninn en látin síga niður um þekjuna á turni kirkjunnar. Klukkan og allur búnaður kemur frá Thomo klukkusmíði í Danmörku og grindin frá vélsmiðjnni Óðni. Allt verður nú endurnýjað í klukkuportinu og verður þetta góður áfangi. Steinsmiðir og trésmiðir frá Múr og Mál ehf. vinna ötullega að því að taka ofan steinskífur af þaki kirkjunnar og verða nýjar lagðar í staðinn sem einnig eru frá Noregi, nánar tiltekið frá Alta í Noregi, en þær gömlu voru frá Voss. Þegar nýjar skífur verða komnar á þekjuna verður kirkjan máluð að utan í fallegum hvítum lit frá Málningu. Enn er unnið að lagfæringum á kjallara gestastofunnar svo hægt verði að koma þangað bókasafninu sem geymt hefur verið í turni kirkjunnar frá sjöunda áratugnum. Einnig verður loksins fyllt að þessu móttökuhúsi að norðan en gestastofan er húsið sem áður var rektorshús og síðast biskupshús en verður í framtíðinni upplýsingamiðstöð og kaffistofa með bókasafnið og prentsögusetrið í kjallaranum. Nauðsynlegar lagfæringar verða einnig gerðar á þaki skólans og vesturgafli hússins. Það er meira að segja verið að laga hlöðuna á bænum og breyta henni í vélaskemmu. Ekki er heldur slegið af við sláttinn og kom Erla í Grænna landi með allan flokkinn í síðustu viku að garðvinnu.
Þau sem vilja leggja einstökum verkefnum lið er bent á Verndarsjóð Skálholtsdómkirkju sem safnar fyrir endurgerð klukknanna, lýsingu í kirkjunni og færslu bókasafns Skálholts. Bankanúmer Verndarsjóðsins er 152-15-380808 og kt. 451016-1210. Öll framlög eru vel þegin og sérstaklega núna þegar framkvæmdir standa sem hæst.
Á sama tíma hefur ferðafólki farið fjölgandi dag frá degi og sækja í nýja veitingarstaðinn okkar, Hvönn í Skálholtskóla, ekki síður en í kirkjuna sjálfa og umhverfi hennar og hinn helga sögustað.
Það er ótrúlegt að koma til kirkju þegar hún er umvafin vinnupöllum og vinnugleðin hefur tekið völd.









































Comments