Mikil "upplyfting" í Skálholti
- Jun 7, 2022
- 1 min read
Nokkuð söguleg stund þegar nýja danska klukkan fékk að taka flugið og svífa í turninn. Að baki henni er stærsta brotið úr þeirri gömlu sem féll og brotnaði við innhringingu á Skálholtshátíð árið 2002. Núna 20 árum síðar er sú nýja komin með styrkjum allra þeirra sem greitt hafa í Verndarsjóð Skálholtsdómkirkju.
Og svo virkaði hún ósköp smá þegar horft var neðan úr garði á það þegar hún kom að gatinu þar sem þekjan hafði verið rofin í turninum.
En kraninn frá Já verki var engin smásmíði og mannskapurinn frá Múr & Mál vann baki brotnu við að koma öllu á sinn stað. Þvílíkur kraftadagur í þágu kirkjunnar.












































Comments