top of page

Messa lita og ljósa 7. maí kl 14:00

  • Apr 29, 2023
  • 2 min read

Updated: May 7, 2023


Loksins verður aftur hægt að messa í dómkirkjunni okkar sunnudaginn 7. maí kl. 14. Fer vel á því að fyrsta messa eftir mikla endurnýjun beri uppá byrjun maí, með vor í lofti og endurfæðingu náttúrunnar. Skálholtsdómkirkja var frá öndverðu nefnd móðir allra guðshúsa á Íslandi af því að hún var fyrsta dómkirkja fyrsta biskups á Íslandi, Ísleifs Gissurarsonar hvíta, en mæðradagurinn er svo sunnudaginn 14. maí.

Skálholtskórinn syngur og er messan hátíðarmessa með altarisgöngu og eftir messu býður Skálholtsstaður uppá vöfflukirkjukaffi í Veitingastaðnum Hvönn, í Skálholtsskólanum. Organisti og stjórnandi Skálholtskórsins er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt frú Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands. Lesarar eru Guðrún Hafsteinsdóttir, alþingismaður, Sigurður Ingi Jóhannesson, innviðaráðherra, Erlendur Hjaltason, formaður Skálholtsfélagsins nýja, og Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir, þjóðfræðingur og kirkjuvörður dagsins.

Viðgerðirnar hafa tekið örlítið fleiri vikur en upphaflega var áætlað en það er ósk vígslubiskupssins að fólk muni njóta þess því meir að meira var gert en upphaflega var ætlað.

Allt er nú endurnýjað. Lýsingin er hönnuð af Þórdísi Harðardóttur með áherslu á að lýsa óbeint og beint upp veggi og loft, listgler og altarismynd. Núna sést líka vel á sálmabókina til söngs og gleði. Hún er kostuð af Verndarsjóði Skálholtsdómkirkju og sett upp af Jens Pétri í Laugarási og hans mönnum ásamt brunavarnarkerfi og neyðarlýsingu. Málningin er gjöf frá Málningu ehf og Múr og Mál hefur verið yfirverktakinn í þessu verki með frábærum mannskap sínum. Allir veggfletir fengu viðgerð og heilspörtlun og voru litirnir valdir í góðu samráði við Minjastofnun þar sem tengiliður okkar og ráðgjafi er Pétur H. Ármannsson. Allar pípulagnir eru nýjar og nýir ofnar og hiti en það önnuðust Símon og menn hans hjá Súperlögnum á Selfossi.

Allir eru velkomnir til kirkju þennan sunnudag og áfram í sumar.

Með þessum áfanga er lokið heildarviðgerð á kirkjunni að utan og innan auk viðgerða á listgleri Gerðar Helgadóttur og mósaíkmynd Nínu Tryggvadóttur. Nú mun helgidómurinn njóta sín til fullnustu og allt til prýði á 60 ára afmæli kirkjunnar á Skálholtshátíð 20.-23. júlí 2023. Verið hjartanlega velkomin.

Á myndinni sést að búið er að stilla upp fyrir tónleika en í vikunni verður allur búnaður kirkjunnar kominn á sinn stað og hún messufær eða einsog sagt var áður fyrr: Prýðilega messufær. Allt er til reiðu, göngum innar.

 
 
 

Comments


Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

SKÁLHOLT - SAGA OG MENNING Í 1100 ÁR

Sími: +354 486-8801

Skálholtsskóli

Skálholti, 801Selfoss

skalholt@skalholt.is

© 2023 Skálholtskirkjustaður

bottom of page