Menning í ágúst í Skálholt í ágúst - Ókeypis er á alla viðburði.
- Jul 28, 2022
- 2 min read
Updated: Aug 15, 2022
Boðið verður upp á þrenna menningarviðburði í Skálholti í ágúst.
Miðvikudagur 17. ágúst kl 20:00 - Óskalögin við orgelið með Jóni Bjarnasyni
Hin einu sönnu Óskalögin við orgelið verða miðvikudaginn 17. ágúst kl 20:00. Jón Bjarnason oragnisti töfrar fram tóna á orgelinu á sinn einstaka hátt. Óskalögin hafa nú þegar skapað sér sinn sess og hafa verið mjög vinsæl meðal gesta Skálholts.
Jón Bjarnason oragnisti töfrar fram tóna á orgelinu á sinn einstaka hátt. Vertu með og veldu þitt óskalag!
--------------------------------------------------------------
Fimmtudagur 25. ágúst nk kl 18:00 - Gengið á slóðir Ragnheiðar Brynjólfdóttur í Skálholti
Friðrik Erlingsson rithöfundur leiðir gönguna en hann er einn helsti sérfræðing landsins í sögu Ragnheiðar. Friðrik skrifaði einmitt handrit að óperunni Ragnheiði sem frumflutt var í Skálholtskirkju á sínum tíma.
Gangan hefst við Skálholtskirkju kl 18:00, og tekur um 1-2 klst. Gengið verður um fornleifasvæðið við kirkjuna, en þar má sjá móta fyrir þeim hýbýlum sem voru í Skálholti á tímum Brynjólfs Biskups og fjölskyldu. Farið verður inn í Skálholtskirkju þar sem sögð verður hin harmræna saga Ragnheiðar. Skoðaðir verða helstu staðir tengdir ævi Ragnheiðar og fólksins hennar. Þar á meðal verður komið við hjá minningarmarki Ragnheiðar og fjölskyldu sem Skálholtsfélag hið nýja kom upp fyrir fáeinum árum.
-------------------------------------------------------------------
Miðvikudagur 31. ágúst kl 18:00 - Dauðra manna sögur í Skálholti - komdu ef þú þorir!
Dauðra manna sögur í Skálholti með Bjarna Harðarsyni er viðburður sem haldinn verður í Skálholti, miðvikudaginn 31. ágúst kl 18:00.
Bjarni mun endurtaka leikinn frá í fyrra og ganga með gesti í spor dauðra manna í Skálholti. Hann mun segja sögur sem tengjast dauðanum og yfirnáttúrulegum atburðum í Skálholti eins og honum einum er lagið.
Sagðar verða sögur, gamlar sagnir, þjóðsögur og frásagnir af yfirnáttúrulegum atburðum í Skálholti. Gengið verður um svæði sem þekkt eru fyrir sagnir, þjóðsögur og atburði sem fá hárin til að rísa. Minningarsteinn um aftöku Jóns Arasonar og sona hans verður heimsóttur, farið inn í Þorláksbúð, í gegnum undirgöngin og sagðar ýmsar sögur af yfirnáttúrulegum atburðum úr fortíð og nútíð sem gerst hafa í Skálholti.
Búið ykkur undir gæsahúð! Ekki fyrir viðkvæma!
-----------------------------------------------------------------
Gangan er auðveld, öllum opin og ókeypis! Verið hræðilega velkomin í Skálholt!
Veitingastaðurinn Hvönn er opinn til kl 20:00 - Hægt er að kaupa veitingar þar fyrir eða eftir viðburðina.
Ókeypis er á alla viðburði en tekið er á móti frjálsum framlögum í Flygilsjóð Skálholtskirkju. Unnið er að því að safna fyrir flygli í Skálholtskirkju. Nýr flygill mun lyfta öllu tónlistarlífi í nýjar hæðir í Skálholtskirkju og auka framboð mismunandi tónleika í kirkjunni. Tekið er við frjálsum framlögum í flygilsjóðinn en hægt er að greiða með seðlum eða korti. Hægt er að leggja inná sjóðinn á reikning 0133-15-1647 kt 610172-0169.
Hér eru myndir sem teknar voru á menningarviðburðum sl sumar.


























































Comments