top of page

Jólatónleikar með Kristjáni Jóhannssyni í Skálholtsdómkirkju 15. desember kl 20:00

  • Dec 15, 2022
  • 1 min read

Jólatónleikar í Skálholtsdómkirkju fimmtudag 15. desember klukkan 20:00


Hátíðlegir jólatónleikar þar sem Skálholtskórinn, Kirkjukór Breiðabólstaðarprestakalls, Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkju og Kirkjukór Landeyja koma saman í Skálholti og syngja þekktar perlur aðventu og jólatónlistar sem koma öllum í hatíðarskap.


Heiðursgestur á tónleikunum er Kristján Jóhannsson óperusöngvari sem syngur einsöng með kórunum.


Á tónleikunum munu kórarnir einnig syngja yndislega tónlist eftir John Rutter. Meðal verka sem flutt verða eru Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, Guðs Kristni í heimi og Ó, helga nótt svo eitthvað sé nefnt.

Samtals eru um 80 kórsöngvarar sem syngja allir saman og líka í minni hópum. Jóhann I. Stefánsson leikur á trompet.

Organistarnir Jón Bjarnason og Guðjón Halldór Óskarsson stjórna kórunum og leika með á orgel.


Miðaverð 4000 kr - Miðasala við innganginn og á Tix.is








Comments


Sérvaldar færslur
Nýjustu færslur
Safnið
Stikkorð
Samfélagsmiðlar
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square

SKÁLHOLT - SAGA OG MENNING Í 1100 ÁR

Sími: +354 486-8801

Skálholtsskóli

Skálholti, 801Selfoss

skalholt@skalholt.is

© 2023 Skálholtskirkjustaður

bottom of page