Endurnýjuð dómkirkja opnar með tónleikum í lok apríl og hátíðarmessu lita og ljósa 7. maí kl 14:00
- Apr 5, 2023
- 2 min read
Updated: Apr 26, 2023

Núna í kyrruviku, helguviku, dymbildaga og yfir páskahátíðina er helgihald í öðrum kirkjum Skálholtsprestakalls einsog segir á öðrum stað hér á heimasíðunni.
En núna stefnir í það að við sjáum endurnýjaða kirkju að utan og innan í tilefni af afmælisári hennar. Gert er ráð fyrir því að gagngerum endurbótum innandyra ljúki undir lok apríl. Fyrsta messa verður hátíðarmessa lita og ljósa sunnudaginn 7. maí kl. 14 með kirkjukaffi á eftir í Skálholtsskóla, veitingastaðnum Hvönn, í boði Skálholtsstaðar. Það eru allir velkomnir einsog alltaf í kirkjunni og vonast vígslubiskup, sóknarprestur, organisti og staðarhaldarar eftir góðri kirkjusókn eftir okkar langa messufall. Skálholtskórinn syngur og við látum reyna á betri hljómburð og mun betri lýsingu.
Tónleikar verða í kirkjunni laugardaginn 29. apríl l 17:00 en þá kemur Karlakór Selfoss með vortónleika sína. Þann 1. maí kemur Karlakórinn Þrestir með tónleika kl 14:00.
Endurbæturnar hafa verið mjög miklar og nægir að nefna algjöra endurnýjun með múrviðgerðum og málningu auk lýsingarinnar. Þá hefur farið fram algjör endurnýjun á ofnalögnum og ofnum og eldvarnarkerfi er komið upp með hönnun Verkís. Málningin er öll gefin af Málningu ehf. Lýsingin er hönnuð af Þórdísi Harðardóttur og hefur Verndarsjóðurinn verið að safna fyrir því með framlögum margra. Yfirverktaki er sá sami og annaðist utanhússviðgerðina, Múr og mál ehf. Pípulagnir eru í höndum Súperlagna á Selfossi og raflagnir eru í höndum Jens Péturs í Laugarási og sona hans, Jóhanns og Róberts. Húsafriðunarsjóður hefur veitt um 6 milljónum í endurgerð kirkjunnar á síðustu þremur árum en veitti auk þess 9 milljónum til endurgerðar á listgleri Gerðar Helgadóttur.
Enn er hægt að styðja við framkvæmdirnar með því að vera með í framlagi Verndarsjóðsins. Reikn.: 152-15-380808 og kt.: 451016-1210. Það er skráður sjóður og veitir skattaafslátt.
Allur þungi af fjármögnun að öðru leyti kemur frá sjóðum Þjóðkirkjunnar og verður betur gerð grein fyrir því þegar allt hefur verið tekið saman þótt ljóst megi vera að það er vel á annað hundrað milljónir utan og innandyra. Er það verðugt verkefni enda Skálholtsdómkirkja eign Þjóðkirkjunnar meðan flestar aðrar kirkjur landsins eru eignir viðkomandi sókna eða ríkissins.
Guð gefi þér uppbyggilega kyrruviku og gleðilega páska þegar þeir ganga í garð.








































Comments